Jæja nokkur orð í dag...... Allt fínt að frétta. Við
ætlum að skíra drenginn okkar á fimmtudag, það er nú loksins orðið
ákveðið hvað hann á að heita þessi elska
en það kemur í ljós
þá. Helgin var bara róleg á þessum bæ eins og alltaf,
fylgdist eiginlega ekkert með Eurovision enda er þessi keppni orðin
leiðinleg finnst mér. Þetta eru bara austur Evrópuþjóðir sem eru að
keppa og gefa hvor öðrum stig. Eiki Hauks stóð sig vel á
fimmtudag og gerði þetta þræl vel en svo komast lög áfram sem eru
ömurleg og sungin fölsk, bara glatað
Það þarf einhverju að
breyta en hverju veit ég ekki.
Við fjölskyldan ætlum að kíkja til Horsens 24.maí og fara í
heimsókn á gamlar heimaslóðir. Okkur hlakkar mjög mikið til
og verður gaman að hitta Ingu Ósk, Hansa, Óla og Brynjar.
Gott ef maður fær sér ekki eins og einn öllara
Fyrsti leikurinn í Landsbankadeildinni í kvöld og byrjum við í
vesturbænum. Hlakka til að fara á völlinn en kvíði samt pínu
fyrir..... það eru soldil meiðsli í okkar mannskap en við erum samt
með rosa gott lið. Það myndi toppa sumarið ef að Ingvi
Rafn spilaði með eitthvað
Red Pony þarf að minna á sig

En annars veðrið er frábært núna, sól og blíða og á maður að
vera úti í svona veðri
geggjað
Later Hjördís